23.02.2012 00:42

Á loðnumiðunum sunnan við Hornafjörð

2411 Huginn VE-55 og 2363 Kap VE-4 Mynd tekin 10. 02. 2012

20.02.2012 15:31

2281 Sighvatur Bjarnason VE-81








2281 Sighvatur Bjarnason VE-81 Myndir teknar 14.01. 2012


17.02.2012 04:42

2401 Þórunn Sveinsdóttir VE-401

2401 Þórunn Sveinsdóttir VE-401  Mynd tekin 10 01 2012

12.02.2012 20:59

Best að prófa þetta

183 Sigurður VE-15 og Hnúfubakur í samkeppni um Loðnuna. Mynd tekin 10. febrúar 2012

31.12.2011 10:59

Gleðilegt nýtt ár

Á ýmsu hefur gengið hjá mér á liðnu ári sem meðal annarrs hefur orðið þess valdandi að ég hef ekki getað sinnt þessari síðu eins og ég hefði kosið. Núna á nýju ári horfir hinnsvegar til betri vegar í þeim efnum og ég vona að ég hafi getu og tök á því að halda henni uppi á nýju ári. Ég þakka öllum þeim sem hingað hafa komið og hafa fylgst með síðunni í gegnum árin fyrir samfylgdina og óska þeim gleðilegs árs.


Kær kveðja
Skipperinn
Guðmundur St. Valdimarsson

27.09.2011 23:52

Vill einhver segja mér

Mér þætti forvitnilegt að vita hvers vegna Internet Explorer 9 og 123.is virka ekki saman. Þarf að vinna hérna í Firefox til að getað sett eitthvað inn. Ef ég reyni að gera eitthvað hérna í IE9 þá fæ ég bara einhverjar meldingar um að þetta og hitt sé ekki hægt. Kann einhver skýringu á þessu ?


Hafsúla á innleið í maí og þá nýlega búin að skipta um lit

25.09.2011 09:19

Hvalur 6 og 7 í Hvalfirði


Farið var í haustlitaferð upp í Hvalfjörð um helgina. En þarna liggja Hvalur 6 og Hvalur 7. Greinilegt að það er verið að vinna eitthvað í þeim þar sem búið er að leggja að þeim vatn og rafmagn

20.06.2011 20:14

Langvarandi fjarvistir

Vegna langvarandi fjarvista og mikillar vinnu hef ég og mun ekki geta sinnt þessari síðu sem skildi á meðan :) Ég vona þó að úr muni rætast þegar fer að hægja um einhvertímann um síðir :)

Þessa mynd tók ég af tunglmyrkva á fullu tungli þann 15 júní 2011.

04.06.2011 22:14

Til hamingju með daginn sjómenn

Ég óska öllum sjómönnum, fjölskyldum þeirra og öðrum velunnurum gleðilegs Sjómannadags emoticon

24.05.2011 03:23

Sjómannaskólinn að hverfa á bak við gler og stál

Gömlu kennileitin eru óðum að hverfa á bak við háhýsin við ströndina séð frá höfnini..





23.05.2011 01:05

5943 Undína HF-55

5943 Undína HF-55 á heimleið úr róðri 09 maí 2011

20.05.2011 07:35

Jötunn og Kleifaberg

Jötunn og Kleifabergið á Sundunum Þann 09 maí

18.05.2011 20:22

Blikur á lofti 1976 Barði NK-120

1976 Barði NK-120 undir óveðursskýjum 25 apríl síðastliðinn.

16.05.2011 00:14

Nýr viti á Skarfagarði

Nýr viti hefur verið reistur á endanum á Skarfagarði í Sundahöfn. Skarfagarður og aðliggjandi svæði hefur verið að taka breytingum m.a. með opnun á aðgengis að sandströnd við Skarfaklett. Þá verður gönguleið fram á enda Skarfagarðs malbikuð á næstu dögum.

Nýi vitinn er smíðaður af járnsmiðum Faxaflóahafna sf eftir sömu teikningu og innsiglingavitarnir, sem eru í Gömlu höfninni og hafa verið frá opnun þeirrar hafnar. Vitarnir í Gömlu höfninni vorur reyndar endurnýjaðir árið 1993, en þeir voru einnig smíðaðir af járnsmiðum fyrirtækisins.

Eftir er að ganga frá hleðslu í kringum nýja vitann auk annarra umhverifsbóta, en það verður gert á næstu vikum.

Tekið af vef Faxaflóahafna.


Nýja vitann má sjá handan við 2756 Jötunn RE


Vitinn á Norðurgarðinum í gömlu höfninni.


Vitinn á Ingólfsgarði í gömluhöfninni.

16.05.2011 00:04

1402 Perla TFFV

Perlan að dýpka í Austurbugt 19. apríl síðastliðinn.

Flettingar í dag: 49
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 91
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 48550
Samtals gestir: 27711
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 08:45:44